Endurgreiðslustefna

SKILAREGLUR

Ef skila á vöru Alhuga skal strax hafa samband við fyrirtækið. Hægt er að senda vöruna með flutningsaðila til Alhuga. Kostnaður (svo sem sendingarkostnaður) við að skila vörunni er greiddur af kaupanda. 

Við vöruskil skal framvísa kvittun eða sýna fram á að varan sé með gjafamiða.

Seljanda er heimilt að meta hvort varan sé í söluhæfu ástandi þegar tekið er við henni aftur. Vara skal vera í upprunalegu ástandi til þess að hægt sé að skila henni, þ.e. að umbúðir og vara séu óskemmd, fylgihlutir og leiðbeiningar séu með vörunni ef um slíkt er að ræða.

Um vöruskil af vöru sem keypt er í netverslun gildir að kaupandi á rétt á endurgreiðslu innan 14 daga frá kaupum. Starfsmönnum er heimilt að neita móttöku skilavöru og endurgreiðslu á vöru ef kassakvittun er ekki framvísað. 

Skil á vörum sem keyptar eru í gegnum viðskiptareikning eru kreditfærð á viðkomandi viðskiptareikning.

Rafbókum og öðrum rafrænum vörum er ekki hægt að skila.