Þjónustuskilmálar
Skilmálar Vefverslunar
Alhuga ehf. (kt. 440324-3550)
Almennt
Allar upplýsingar á vef Alhuga, þ.m.t. birgðastaða, verð o.s.frv. eru birt með fyrirvara um villur. Alhuga áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsingum, ásamt því að breyta verðum, afhendingartíma o.s.frv. Þá er áskilinn réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Afhending vöru
Alhuga er staðsett á Fáskrúðsfirði. Öll vörukaup úr vefverslun er dreift af Íslandspósti. Kaupandi getur valið að fá sent í póstbox, á næsta pósthús eða pantað heimkeyrslu sé sú þjónusta í boði á landssvæði viðtakanda, á kostnað kaupanda. Gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vöru frá Póstinum. Skilmálar Póstsins eru aðgengilegir á vefsíðu fyrirtækisins. Alhuga ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi Póstsins.
Reynt er eftir fremsta megni að afgreiða öll kaup innan tveggja virkra daga frá pöntun. Áætlaður afhendingartími er 3-4 virkir dagar eftir að pöntun hefur verið staðfest og greidd.
Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.
Skilafrestur
Kaupandi hefur 14 daga skilarétt að því tilskildu að varan sé ónotuð, í fullkomnu lagi og skilað í því ástandi sem hún barst til kaupanda. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Senda skal beiðni fyrir skil á vöru. Nánari upplýsingar má finna undir Skilareglur.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og/eða viðgerð í samræmi við lög um neytendaábyrgð.
Netverð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.
Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður er birtur við pöntun vöru og fer eftir afhendingarmáta sem viðskiptavinur velur og verðlagningu Íslandspósts.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Varnarþing
Þessir skilmálar eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna þeirra, skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli.
Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um neytendasamninga nr 16/2016 og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 16/2016 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.